Exhibition
Međ viljann ađ vopni - Endurlit 1970 - 1980
Með viljann að vopni - Endurlit 1970 - 1980 Hér er hægt að horfa á fréttir um sýninguna: http://www.ruv.is/frett/kvennabarattan-i-myndlist Víðsjá, umfjöllun um sýninguna: http://dagskra.ruv.is/ras1/4557238/2010/09/05/ "Ótrúlegur sprengikraftur, maður þekkir flest, og kannast við flesta listamennina, samt er ein og ein sem ég hef ekki tekið eftir" http://blogg.visir.is/jarl/2010/09/05/með-viljann-að-vopni-flott-syning-a-kjarvalsstoðum/
4. september - 7. nóvember. Kjarvalsstaðir.
Áhugaverð gagnrýni um sýninguna "Með viljann að vopni" sem er á Kjarvalsstöðum sjá: http://dagskra.ruv.is/ras1/4555518/2010/09/08/
Kvennaáratugurinn svokallaði markaði djúp spor í íslenska sögu en tímamótanna er minnst á sýningunni með verkum eftir rúmlega tuttugu íslenskar konur. Markmiðið sýningarinnar er að varpa ljósi á listsköpun kvenna á þessum áratugi með áherslu á þau fjölbreyttu efnistök sem þær notuðu til að koma áleiðis skilaboðum sínum og uppgjöri við gamla tíma.
Á sýningunni er þess minnst að 40 ár eru frá stofnun Rauðsokkahreyfingarinnar og jafnlangt er síðan kona var fyrst skipuð ráðherra á Íslandi (Auður Auðuns).
Þá eru 35 ár liðin frá Kvennafrídeginum og 30 ár frá kjöri Vigdísar Finnbogadóttur í embætti forseta Íslands. Einnig eru 80 ár liðin frá því að Landspítalinn tók til starfa, en konur áttu drjúgan þátt í því að hann var stofnsettur.
Síðast, en ekki síst, þá eru 100 ár liðin frá því að íslenskar konur fengu kosningarétt í bæjar- og sveitarstjórnum. Vönduð bók prýdd fjölda mynda verður gefin út samhliða sýningunni og staðið verður fyrir fjölmörgum viðburðum á sýningartímabilinu.
Sýningarstjóri er Hrafnhildur Schram, sjá: http://www.listasafnreykjavikur.is/desktopdefault.aspx/tabid-2182/3369_read-1663/date-1564/










